Starfskraftur hefst mánudaginn 8. október náist í hóp
Starfskraftur er einnar annar náms- og starfsþjálfunarúrræði fyrir 16-18 ára reykvísk ungmenni sem hvorki stunda nám né vinnu.
Vísanir í Starfskraft þurfa að berast í gegnum þjónustumiðstöðvar Reykjavíkurborgar: Þjónustumiðstöð Árbæjar og Grafarholts, Þjónustumiðstöð Breiðholts, Þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness - Miðgarði, Þjónustumiðstöð Laugardals, Háaleitis og Bústaða og Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða.
Kennt er í Námsflokkum Reykjavíkur en starfsþjálfun fer fram á vinnustöðum á Höfuðborgarsvæðinu.
Ungmenni í Starfskrafti fá greidd starfsþjálfunarlaun fyrir unna tíma.
Sjá ýtarlegri upplýsingar í bæklingi, annaryfirliti og hér.